Eggjahræra

IMG_6086Innihald: / smá ólífuolía, kókosolía eða ghee / 3-4 egg / 1 lúka spínat eða grænkál / 2 hvítlauksgeirar / 1-2 cm engifer / smá turmeric / smá salt / 1 msk hörfræ / 1 msk sesamfræ / smá hampfræ.

  1. Setjið olíuna á pönnu léttsteikið spínatið.
  2. Þið getið hrært eggin saman í skál, kryddað og sett svo allt á pönnuna en ég set eggin bara beint á pönnuna. Kreisti hvítlaukinn yfir og engiferrótina líka í hvítlaukspressu og krydda. Hræri svo öllu saman á pönnunni til að gera þetta eins einfalt og hægt er.
  3. Setjið 1 msk hörfræ og 1 msk sesamfræ í kaffikvörn og búið til mulning sem þið stráið yfir þegar eggjahræran er komin á diskinn. Þar með er þetta orðið omega/kalk bomba!
  4. Setið smá hampfræ yfir líka.

Þessa eggjahræru geri ég mér rosalega oft á morgnana eftir æfingu því egg eru það einfaldasta sem hægt er að elda og súperholl. Stundum þegar ég á turmeric rót nota ég hana í staðinn fyrir duft, kreisti bara úr hvítlaukspressu eða ríf í litlu rifjárni. Turmeric rót er erfitt að fá á Íslandi því miður og er oft auglýst sérstaklega fyrstur kemur fyrstur fær þegar hún er til. Þegar ég fer í vinnuna til Ameríku fer ég yfirleitt í dásamlegu Whole Foods og næli mér í turmeric rót.

3 Comments on Eggjahræra

  1. Anna María
    3. November, 2014 at 11:40 am (9 years ago)

    Mig langar að forvitnast hvernig þú notar turmerik rótina í þennan rétt? Skerðu hana niður fínt eða hvað?

    Reply
  2. Ljómandi
    3. November, 2014 at 11:56 am (9 years ago)

    Ég ríf bara smá niður með rifjárni yfir eggin á pönnunni.

    Reply
  3. Anna María
    3. November, 2014 at 12:42 pm (9 years ago)

    Takk fyrir það. Ég fékk Turmerik rót í bónus.

    Reply

Leave a reply to Anna María Cancel reply