Botninn: / 2 bollar kúrbítur / 3/4 bollar malaðar möndlur / 1/4 bolli rifinn parmesan / 1 msk chiafræ (möluð í kaffikvörn) / 1 tsk oregano / 1/2 tsk hvítlauksduft / 1/4 tsk salt
Heimagerð pizzusósa: / 2 dl maukaðir tómatar / 1 dl tómatpúrra / 1-2 hvítlauksrif / 1-2 tsk oregano
Ofaná: tómatsósa + ostur + pestó + rúkóla + heimagerð hvítlauksolía
- Kúrbíturinn er rifinn fínt á rifjárni og síðan er vökvinn kreistur úr honum gegnum spírupoka (fæst í Ljósinu Langholtsvegi). Mikilvægt að kreista vökvann vel úr.
- Öllu er blandað saman í skál og síðan sett á bökunarpappír á ofnplötu.
- Bakið við 180°C í 25 mínútur.
- Snúið svo við og bakið í 5-10 mínútur.
- Smyrjið svo sósunni á, stráið osti yfir og bakið aftur þar til osturinn hefur bráðnað.
- Takið pítsuna út úr ofninum, smyrjið grænu pestói á pítsuna, setjið rúkóla og hvítlauksolíu ofan á. Njótið!
Þessi uppskrift er frá Sollu http://www.lifrænt.is