Að sjóða quinoa

IMG_5703-2

Það er frábært að nota quinoa í staðinn fyrir pasta og hrísgrjón. Það er í raun og veru fræ en ekki korn. Það er mjög próteinríkt, er trefjaríkt, inniheldur magnesíum og járn. Quinoa fæst hvítt á litinn, rautt og svart.

Að elda quinoa:

  1. 1 dl af quinoa gerir ca. 3 dl þegar búið er að sjóða það.
  2. Notið helmingi meira af vatni en korninu þegar þið sjóðið (1dl quinoa á móti 2dl vökvi).
  3. Það tekur uþb. 20 mínútur að sjóða það og ca. 10 mínútur ef það hefur legið í bleyti.
  4. Quinoa er beiskt á bragðið en með því að skola það vel undir rennandi köldu vatni í sigti losnið þið við beiska bragðið. Best er að skola vel eða í amk. 2 mínútur og notið hendurnar til að velta korninu undir vatninu.
  5. Látið vatnið renna af því.
  6. Þið getið sett það beint í pott eftir að búið er að skola það og sjóða.
  7. Ég nota yfirleitt tamarisósu út í vatnið þegar ég sýð quinoa en það er líka gott að nota hollan kjúklinga- eða grænmetistening til að fá smá bragð.

EN til að gera quinoa svo miklu, miklu betra:

  1. Hitið smá olífuolíu í potti við meðalhita, bætið svo grjónunum út í og hitið í 1 mínútu í pottinum. Hrærið í á meðan og látið vatnið gufa upp.
  2. Síðan bætiði vökvanum í til að sjóða quinoað út í pottinn ásamt kryddi og látið suðuna koma upp.
  3. Mér hefur reynst betra að nota ekki helmingi meira vatn heldur þannig að það rétt fljóti yfir.
  4. Stillið á lægsta hita þegar suðan er komin upp og sjóðið með loki í 15 mín.
  5. Takið pottinn af plötunni eftir 15 mínútur og látið standa í 5 mínútur með lokinu yfir.
  6. Hrærið aðeins í með gafli og njótið.

Með þessari aðferð verður quinoað einhvern veginn mýkra, léttara og bara svo miklu betra. Allir í fjölskyldunni fundu muninn :O)

IMG_5233

 

Bordi2

 

Leave a Reply