Kókosolía og oil pulling

NF-July30-Is-Coconut-Oil-Good-For-You-2Kókosolía er algjört undraefni.

Hún er mjög ólík annarri fitu vegna þess að hún er nánast eingöngu gerð úr meðallöngum fitusýrum og brotnar þannig öðruvísi niður en fita sem samanstendur af lengri keðjum þrátt fyrir að innihalda mettaðar fitusýrur. Miðlungs-langar fitusýrur kókosolíunnar fara beint til lifrarinnar úr meltingarveginum þar sem þær eru nýttar sem orka og þær geymast ekki eins vel í fituvef og önnur fita (1,2). Ég nota alls konar fitu í mína matargerð. Ég nota kaldpressaða ólífuolíu, repjuolíu, sesamolíu, smjör og ghee því ég elska smjör. En af því að kókosolían er svo einstök þá reyni ég að nota meira af henni en hinum olíunum. Ég nota hana bæði sem steikingarolíu því hún er hitaþolin og líka stundum í bakstur. Þegar ég minnkaði sykurinn í mínu fæði tók ég eftir því að ég sótti miklu meira í fitu og þá kom sér vel að eiga kókosolíu sem ég skellti t.d. í  boostið mitt.

Kókosolía er frábær rakabomba.

Ég hef nánast ekki notað neitt annað krem en kókosolíu á líkamann í mörg ár og þegar ég uppgötvaði fyrst hversu dásamlega kókosolían virkar á líkamann þá gaf ég öllum eina krukku í jólagjöf það árið. Mér finnst hún gefa húðinni minni þann raka sem hún þarf, gefur henni fallegan gljáa og olían sýjast beint inn í húðina og er alls ekki neitt pirrandi. Hún er víst náttúrulega örverudrepandi, full af andoxunarefnum og mér finnst hún mjög róandi fyrir húðina. Fyrir þá sem finnst lyktin af henni ekki góð þá fæst hún lyktarlaus. Stundum nota ég kókosolíu til að taka af mér farða og hún er líka frábær augnhreinsir. Maðurinn minn notar oft kókosolíu sem rakakrem í andlitið og það geri ég af og til líka. Ég set hana stundum á mig áður en ég fer í sól því einhvers staðar las ég að hún væri frábær sem sólarvörn. Ég bý mér stundum til baðsalt og nudda þá saltinu saman við kókosolíu til að búa til líkamsskrúbb. Eftir á verður húðin eins og ný og silkimjúk. Börnin mín fá stundum kókosolíu á kroppinn sinn og út í baðið. Þeim finnst það algjör lúxus. Ég nota stundum kókosolíu í hárið á mér og stelpunum mínum sem eru með sítt hár til að fá raka og gljáa í hárið og það er frábært ráð að setja hana í hárið áður en farið er í gufu og hún er víst mjög góð fyrir þurrt og illa farið hár.

Kókosvatn er algjör snilld.

Það er það besta sem ég veit eftir erfiða æfingu og sérstaklega eftir hot yoga. Í hitanum tapast nefnilega steinefni og sölt úr líkamanum með svitanum og kókosvatn inniheldur mjög mikið af hvoru tveggja eins og kalíum og magnesíum sem er mjög gott fyrir vökvajafnvægið. Ég vel hreint kókosvatn því sumar tegundir innihalda fullt af sykri og það er frábær vökvi í boost sem og kókosmjólk. Ég nota einnig kókosmjólk í súpur og bakstur og það er hægt að búa til rjóma úr kókosmjólk með því að geyma hana í ísskáp því þar skilur hún sig og nota þá kremið sem rjóma og vatnið í t.d. boost. En svo er einnig til kókosrjómi (coconut cream) sem er t.d. tilvalinn í bakstur.

Hvað er oil pulling?

Oil pulling er gömul aðferð úr ayurvedískum fræðum sem er sögð hafa mjög góð áhrif á tannheilsu, dregur úr bakteríum í munni og gerir þær hvitari. Svona ferðu að:

  1. Settu ca. 2 tsk af lífrænni, kaldpressaðri virgin kókosolíu í munninn og láttu bráðna.
  2. Veltu olíunni um í munninum í 20 mínútur því það er víst sá tími sem það tekur fyrir bakteríurnar að renna saman við olíuna í munninum. Flest eiturefni líkamans eru fituleysanleg og á þessum 20 mínútum verður olían hvít og þykk þegar hún blandast munnvatninu út af bakteríunum sem olían nær að krækja í.
  3. Spýttu svo olíunni í klósett eða ruslatunnu og ekki í vask því munnvatnið er nú fullt af einhverju sem þú vilt ekki setja þar. Og alls ekki gleypa :)
  4. Hreinsaðu svo munninn vel með heitu vatni og burstaðu tennurnar vel.

Það er víst best að gera oil pulling á morgnana áður en eitthvað er sett ofan í maga. Mér finnst best að gera þetta þegar allir eru farnir í skólann því ég verð nú aðeins að tala við heimilisfólkið mitt áður en þau halda út í daginn og ekki talar maður mikið með fullan munninn af olíu. Þannig að ég skelli þessu bara yfirleitt í munninn þegar ég er að ganga frá eftir morgunmat og sinna heimilisstörfum. Svona þegar ég man eftir að gera þetta það er að segja :)

Leave a Reply