Botn: / 1 bolli möndlumjöl / 2 msk hlynsíróp / 1 msk kókosolía (fljótandi) / 1/4 tsk möndludropar eða extraxt / smá salt.
Kókosfylling: / 1 bolli kókosmjöl / 3 msk hlynsíróp / 2 msk kókosolía (fljótandi) / 1 msk vatn.
Súkkulaði: / 1/4 bolli kakóduft / 1/4 bolli kókosolía (fljótandi) / 2 msk hlynsíróp.
- Setjið bökunarpappír í form, ég notaði venjulegt jólakökuform.
- Setjið kókosolíukrukkuna í heitt vatn svo olían verði fljótandi.
- Blandið öllu sem er í botninum saman í skál, hrærið vel saman þar til verður að deigi og pressið slétt í botninn á forminu.
- Blandið öllu sem er í kókosfyllingunni saman og hrærið vel. Setjið yfir botninn og sléttið.
- Búið til súkkulaðið í skál, pískið smá til að fá fallega áferð á það og hellið yfir.
- Setjið í frysti og tilbúið eftir 1-2 tíma.
- Skerið í fallega bita og berið fram beint úr frysti, það er betra að bera þá fram kalda.
Þessir ótrúlega einföldu og meiriháttar góðu bitar komu alveg óóótrúlega á óvart. Þvílíkt nammi. Ég held ég sé búin að finna jólakonfektið mitt svo gott er þetta.
Ég fann þessa dásemdar dásemd á detoxinista.com