Súkkulaði-hrákaka með “mousse” kremi

IMG_4491Botn: / 2 bollar valhnetur / 1 1/2 bolli hlynsíróp / 1 bolli vatn / 1 tsk lífrænir vanilludropar / 2 bollar hreint kakó / 3 bollar kókosmjöl / 1 tsk sjávarsalt

  1. Setjið kókosmjöl í matvinnsluvél/blandarann til að fá fínlega áferð og setjið til hliðar.
  2. Setjið valhnetur, agave, vatn og vanilludropa í blandara og maukið.
  3. Blandið svo kakói og salti saman við. Setjið í skál og blandið saman við kókosmjölið.
  4. Setjið í 24 cm smelluform klætt að innan með bökunarpappír og þjappið vel.

Mousse: / 2 bollar kasjúhnetur / 1 bolli gróft kókosmjöl / 1 1/4 tsk bolli vatn / 1 msk kakó / 2 1/2 tsk lífrænir vanilludropar / smá salt / 1 bolli hlynsíróp / 1 1/2 bolli kókosolía (fljótandi).

  1. Kasjúhnetur, kókosmjöl, og vatn sett í blandara og þeytt saman.
  2. Restinni blandað út í, síðast kókosolíunni og blandað vel.
  3. Þá er “mousse” kremið sett ofan á botninn og formið sett í frysti í amk. 2 tíma.

Ég bauð upp á þessa í afmæli og var beðin um uppskiftina sem er besti mælikvarðinn á hversu vel heppnast að mínu mati.

4 Comments on Súkkulaði-hrákaka með “mousse” kremi

  1. Íris Sig.
    31. March, 2014 at 6:11 pm (10 years ago)

    Þessi lítur alveg hrikalega vel út, verð að prófa.
    Innilega til hamingju með síðuna,duglega.

    Reply
  2. Valdís
    31. March, 2014 at 7:54 pm (10 years ago)

    Já hún er alveg ótrúlega góð. Takk Íris mín.

    Reply
  3. Sigríður Erla
    6. April, 2014 at 9:32 am (10 years ago)

    Já er algjört æði! Til hamingju með síðuna elsku Valdís. Hlakka til að fylgjast með :)

    Reply
  4. Ljómandi
    7. April, 2014 at 10:35 pm (10 years ago)

    Takk innilega Sigríður Erla mín :)

    Reply

Leave a reply to Sigríður Erla Cancel reply