Innihald: / 1 lambalund / 1 brokkolíhöfuð / 1 rauð paprika / 1 rauðlaukur / 1 gúrka / 3 tómatar / 3 gulrætur / belgbaunir.
Dressing: 1/2 msk fiskisósa / 2 msk ristuð sesamolía / 1 msk hlynsýróp eða akasíuhunang / 1 msk tamarisósa / 2 hvítlauksrif / 2-3 cm engifer / 1/2 rautt saxað chili / smá limesafi.
Hnetur: setjið kasjúhnetur í eldfast mót og kryddið með karríi, smá agave eða einhverju til að sæta og chili. Hitið í ofni í smá stund eða þar til þær verða pínu harðar.
- Kryddið lambalundina og eldið.
- Sjóðið vatn í katli og hellið yfir brokkolíið, látið standa í ca. 1 mínútu.
- Skerið niður grænmetið og setjið í fallega skál.
- Skerið lambalundina í þunnar sneiðar og blandið saman við grænmetið.
- Hellið dressingunni yfir.
- Stráið ristuðum sesamfræjum yfir og hnetunum.
Ég fékk þetta salat hjá Jönu vinkonu minni þegar ég heimsótti hana til Lúxemborgar. Jana er algjör snillingur í eldhúsinu og stútfull af alls konar fróðleik varðandi mat og heilsu almennt. Hún sér um eldhúsið á HaPP Luxembourg. Þannig að þetta salat klikkar alls ekki.
Verði ykkur að góðu
Jana
8. May, 2014 at 7:15 am (10 years ago)Ohhhhh krúttið mitt, takk fyrir þessu fallegu orð,
Xxx
Ljómandi
8. May, 2014 at 10:26 am (10 years ago)Takk sömuleiðis Jana mín.
Ása
12. May, 2014 at 10:43 am (10 years ago)Takk fyrir girnilega uppskrift Mig langaði svo að vita hvernig eru belgbaunir og hvað notaðirðu mikið af þeim? Einnig fiskolía – er það sama og fiskisósa?
Kv. Ása
Ljómandi
13. May, 2014 at 4:05 pm (10 years ago)Þú getur notað sykurbaunir eða edamame. Takk fyrir að benda mér á að það sé fiskisósa en ekki olía. Búin að laga það í uppskriftinni. Bestu kv. Valdís.
Ása F. Kjartansdóttir
16. May, 2014 at 6:21 pm (10 years ago)Búin að prófa og var æðilegslega gott, kærar þakkir. Sleppti reyndar baununum þar sem þær fengust ekki í búðinni 😉 prófa þær næst.
Ljómandi
19. May, 2014 at 10:22 am (10 years ago)Frábært að heyra Takk fyrir þetta.
Gerður
12. May, 2014 at 7:58 pm (10 years ago)Þetta er æði
Ljómandi
13. May, 2014 at 3:58 pm (10 years ago)Takk takk Gerður